Gjörsamlega búin á því og get varla mikið meir.

Ég er gjörsamlega búin á því og ég get ekki meir.
Ég hef enga orku og ef ég stend í meira en nokkrar sekundur þá líður yfir mig.
Ég tek járn og borða grænt grænmeti í tonnatali óg það er mjög járnríkt fæði sem ég borða en nei ekkert gerist.
Ég kemst ekki í sturtu því ég get ekki staðið í sturtunni.
ég fer til læknis á þriðjudaginn og er svo hrædd um að hún leyfi mér ekki að fá járn í æð.
Ég er að gefast upp ég get þetta ekki svona.
Eina sem ég geri allan daginn er að sofa og borða því ég hef ekki orku í meira.
Ég elda ekki einu sinni matinn þannig að eina sem ég geri er að éta hann.                                    

Maðurinn minn eldar og vigtar matinn minn.

Vantar smá pepp.

Ég var svona líka þegar ég var ófrísk af Evu Rut nema þá var ég ekki jafn slæm.

Varð að pústa smá. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

PEPP PEPP PEPP PEPP PEPP............ Þú getur þetta ég veit það og þetta á pottþétt eftir að lagast...... Treystu Gussa og hann lagar........... Ég skal líka biðja hann..... Tveir eru betra en einn.........

Helga Dóra, 4.5.2008 kl. 21:20

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

pepp pepp pepperoni segi ég nú bara ... ég bið líka ... en hvað segir doktorinn??

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.5.2008 kl. 22:45

3 Smámynd: María

Úff púff, ekki gott að líða svona, en þetta hlýtur núna að fara bara batnandi. En reyndu líka að hvíla þig vel og hlusta á líkamann, hann er eitthvað að segja þér, kannski áttu bara að hvílast svo litla baunin geti einbeitt sér að því að vaxa.

María, 4.5.2008 kl. 23:44

4 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Elsku dúllan mín mikið er leiðinlegt að heyra hvað þér líður illa. Vonandi  reddar doksinn þessu. En ég veit samt að þú getur þetta alveg með hjálp Guðs og Gráu síðunnar. Þú ert með númerið mitt skvísa. Hafðu það bestabest. Þú ert sko í bænum mínum.

Kristborg Ingibergsdóttir, 6.5.2008 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband