úff húðin mín.
28.4.2008 | 03:35
Mér líður svo krumpuð og eldgömul þegar ég skoða húðina mína núna það vantar alveg fyllinguna í hana sumstaðar.
Og þegar ég ligg út af þá líður mér eins og upplásin blaðra sem hefur gleymst og er orðin smá loftlaus og krumpuð.
og ég á meira en helminginn eftir af kílóunum til að missa vá hvað ég verð bara gangandi húð.
Allt í lagi þá fæ ég kanski ekki slit á magann þegar kúlan kemur.
Verður maður ekki að vera bjartsýnn.
Athugasemdir
ég fékk kast þegar ég fór í fyrsta skipti í baðkarið eftir að ég grenntist, það var eins og það flyti hafragrautur í baðvatninu ... lifi sturtan !
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 28.4.2008 kl. 10:27
Shock up og wonderbra er það eina sem virkar á þetta..... Nú, ekki nema maður fari í nip&tuck gírinn.....
Helga Dóra, 28.4.2008 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.