Dagur 57 og 4 dagar í viktun.
6.3.2008 | 13:21
Já fólk ég er svo ánægð með lífið hehe.
Karlinn í útlöndum en hann kemur heim á morgun.
Dóttirin með flensu ofan í hlaupabóluna en það er bara tímabil.
Ég föst inni og búin að ná setningunni"svefn er lúxus"
En vitið þið hvað það er bara allt í lagi þetta felst í því að vera partur af lífinu.
Já ég er rosalega hamingjusöm og ánægð að vera orðin partur af mínu eigin lífi.
Bæta aðeins við hehe.
Ég fór út í búð að kaupa kartöflumjöl í baðið hvað haldið þið að ég hafi komið með heim já ég kom heim með flórsykur
Smá meiri viðbót.
Jú hvað haldið þið ég er orðin veik líka. Ég á í vandræðum með að halda niðri matnum mínum og er bara rosalega flökurt og dofin ég sem ætlaði í matarboð á morgun Ég veit að þær munu allar sakna mín hehe.
Athugasemdir
Kartöflumjöl í baðið????? Hvað er það???
Helga Dóra, 6.3.2008 kl. 18:14
það er sagt vera undraráð við hlaupabólukláða meira veit ég ekki.
Hafrún Kr., 6.3.2008 kl. 18:19
ég mana þig að setja flórsykur í baðið hahaha
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 6.3.2008 kl. 21:26
takk :)
Hafrún Kr., 7.3.2008 kl. 00:21
Söknuðum þín mikið og komumst að því að þú hlýtur að hafa sofið í jakkanum þínum. Þú ert í honum á hverri einustu mynd og hneptum uppí háls. Ég kom með fullann poka af fötum til þín en kem bara með hann á fundinn á mánudaginn í staðinn.
En flórsykur í baðið???? og kakó líka kannski???
Helga Dóra, 8.3.2008 kl. 01:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.